Um Hreinsibíla

Þekking – traust – reynsla

Fyrirtækið Hreinsibílar ehf. hefur verið í fararbroddi á sínu sviði frá stofnun þess árið 1987. Jón Guðni Kristinsson stofnaði fyrirtækið en í ársbyrjun 2008 keypti Frumherji hf. fyrirtækið.

Hreinsibílar búa yfir mikilli reynslu og fjölda nýjunga við hreinsun, viðhald og endurgerð lagna án uppgraftar og myndbandstökubílum með búnaði til að skoða lagnir áður en farið er út í viðgerðir. Starfsmenn Hreinsibíla eru nú orðnir vel á annan tug og byggir fyrirtækið á dýrmætri reynslu þeirra og þekkingu.

Helstu verkþættir:

  • Fóðrun lagna, endurgerð lagna án uppgraftar.
  • Myndun lagna, loftstokka, borhola o.sv.frv. með sérstökum myndbandstökubílum.
  • Hlutafóðrun lagna.
  • Viðgerðir á brunnum.
  • Hreinsun lagna, vélarúma og tanka með háþrýstitækni.
  • Lagnatengingar.


Rekstrarstjóri Hreinsibíla ehf.
Arnar Hreinsson
arnar@hreinsibilar.is