Með lagnirnar á hreinu Dælubílar fyrirtækisins eru í fjölbreyttum verkefnum allan ársins hring. Bílarnir losa óhreinindi af öllu tagi sem föst eru í lögnum, án þess að skemma þær á nokkurn hátt. Beitt er háþrýstitækni; óhreinindin losna úr lögnunum með hjálp vatnsþrýstings og sogast upp í sérstakan tank í bílunum.
Dælubílarnir geta hreinsað lagnir allt frá þremur tommum upp í þrjá metra að þvermáli – allt niður á 25 metra dýpi. Með því að nota háþrýstitækni er tryggt að lögnin verður alveg hrein – engin óhreinindi sitja eftir þar sem þau sogast upp í hreinsibílinn í stað þess að setjast neðar í lögnina.
Vélarrúm og tankar skipa eru hreinsuð með háþrýstitækni á sambærilegan hátt. Úrgangsolían fer síðan í sérstaka meðhöndlun hjá olíufélögunum til að fyrirbyggja að nokkur mengun hljótist af.
Hreinsibílar leysa líka vandann þar sem rætur trjáa í grónum görðum hafa þrengt sér inn í lagnir og valdið stíflum. Eins konar sláttuvél er þá send niður með slöngunni – og málið er leyst.
