Lagnirnar inni í myndinni Hreinsibílar voru fyrsta fyrirtækið hér á landi til að kynna myndbandstækni við skoðun lagna. Myndbandstökubílar fyrirtækisins og upptökutæknin nýtast við margvíslegar aðstæður, s.s. í skolplögnum, loftstokkum, hitaveiturörum, vatnsleiðslum og borholum. Tæknin veitir nákvæmar upplýsingar um ástand lagnar án þess að stofnað sé til óþarfs kostnaðar við uppgröft og jarðrask.
Myndbandstökuvélin, sem er sjálfkeyrandi, er send frá bílnum og ofan í lögnina eftir að hún hefur verið hreinsuð. Vélin getur farið allt að 300 metra og skoðað lagnir frá þremur tommum upp í þrjá metra að þvermáli. Hún hefur snúningshöfuð sem gefur möguleika á því að sjá upp í hliðargreinar eða þvert á rörvegg. Öll myndatakan er tekin upp á DVD til nánari skoðunar. Ástand lagnar er svo greint eftir ákveðnu kerfi og skýrsla send með upptökunni til skýringar.
Með þessari tækni er úttekt lagna einföld og örugg – og með auðveldum hætti er hægt að finna legu gamalla lagna. Þetta er því dýrmæt leið t.d. til að meta ástand lagna í eldri hverfum og húsum
