Hlutafóðranir

Ein stök fóðrun - allt innanfrá án uppgraftrar

Hlutafóðrun er einstök tækni þar sem einungis hluti lagnarinnar er fóðraður eða eingöngu sá hluti sem skemmdur er hverju sinni. Inn í lögnina er settur sérvættur trefjadúkur sem þrýst er að gamla rörinu. Allt er unnið innanfrá og tekur ferlið aðeins um eina og hálfa klukkustund.

Á myndinni hér að neðan sést hvar hlutafóðruninni hefur verið komið fyrir (guli parturinn). Þar hefur verið skemmd sem búið var að hreinsa og fræsa burt alla agnúa. Fóðrunarefninu var svo komið fyrir og eftir viðgerð rennur frárennslið um lögnina hindrunarlaust.