Brunnaviðgerð í viskubrunninn

Með tímanum skemmast brunnar og það myndast sprungur og þar með fara
þeir að leka. Jafnframt ryðga þrep, og botnar springa eða síga. Einfalt
er að gera við gamla brunna og mun ódýrara en að skipta um þá með tilheyrandi
uppgreftri og óþægindum.
Brunnarnir eru húðaðir að innan með sérstökum
steypublöndum (rappaðir) og skipt um tröppujárn, botn og kransa/lok eftir því sem þörf
er á.
Með
áætlun um reglulegt viðhald á brunnum sparast kostnaður, auk þess sem
viðgerð er mun ódýrari og einfaldari en að skipta um brunn.