Stíflulosun

Stífluvandamálinu eytt

Með reglubundnu viðhaldi lagna eru minni líkur á því að þær stíflist, s.s. í mikili rigningu eða leysingum, en þó er alltaf hætta á slíku. Með samningi við Hreinsibíla eru menn á vakt og tilbúnir í vinnu allan sólarhringinn alla daga ársins. Í framhaldi af slíku tilfellum er reynt að grafast fyrir um ástæður og úrbætur lagðar til svo vandamálið endurtaki sig ekki.

Oft er um tregðu í lögnum að ræða sem hægt er að hreinsa með háþrýstitækni, óhreinindin losna þá úr lögnunum með hjálp vatnsþrýstings. Dælubílar Hreinsibíla geta hreinsað lagnir allt frá þremur tommum upp í þrjá metra að þvermáli, allt niður á 25 metra dýpi. Stundum getur svo þurft að hreinsa með fræsi aðrar fyrirstöður, s.s. rætur og aðskotahluti sem valdið geta endurteknum stíflum, og jafnvel getur verið æskilegt að fóðra viðkomandi lögn. Hreinsibílar hafa tæki og þekkingu til þess arna.

Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um stíflulosun.