Heildarlausnir

Allur pakkinn í einum pakka

Hreinsibílar bjóða sveitarfélögum upp á heildarþjónustu um viðhald og endurnýjun á lögnum þess. Með því að gera þjónustusamning til lengri tíma næst fram hagræðing fyrir báða aðila sem skilar sér í ódýrara og skilvirkara viðhaldi frárennslislagna. Meðal þeirra þátta sem eru í slíkum þjónustusamningum eru:

  • Fóðrun frárennslislagna: Áætlun gerð um viðhald og endurnýjun lagna til lengri tíma. Lagnir eru myndaðar og fylgst með skemmdum og ástandi. Lagnir eru heilfóðraðar eða hlutafóðrun beitt þegar afmarkaðar skemmdir hafa komið fram.
  • Stíflulosanir: Öll losun á stíflum í gatnakerfinu þegar þörf er á, t.d. eftir mikið vatnsveður eða þegar óvæntar stíflur verða í fráveitunni. Þjónustan er í boði 24/7/365.
  • Brunnaviðgerðir: Einfalt er að gera við gamla brunna og mun ódýrara en að skipta um þá með tilheyrandi uppgreftri og óþægindum. Brunnarnir eru húðaðir að innan með sérstökum steypublöndum og skipt um tröppujárn og kransa/lok eftir því sem þörf er á.

Hreinsibílar taka þátt í útboðum og veita ráðgjöf varðandi viðhald frárennslislagna sveitarfélaga. Hafðu samband.