Brunnaviðgerðir

Rapp í staðinn fyrir stapp

Með tímanum skemmast brunnar og það myndast sprungur og þar með fara þeir að leka. Jafnframt ryðga þrep, og botnar springa eða síga. Einfalt er að gera við gamla brunna og mun ódýrara en að skipta um þá með tilheyrandi uppgreftri og óþægindum. Brunnarnir eru húðaðir að innan með sérstökum steypublöndum (rappaðir) og skipt um tröppujárn, botn og kransa/lok eftir því sem þörf er á.

Með áætlun um reglulegt viðhald á brunnum sparast kostnaður, auk þess sem viðgerð er mun ódýrari og einfaldari en að skipta um brunn.

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar.