Stíflulosun

Stífluvandamálunum eytt út

Með reglubundnu viðhaldi lagna eru minni líkur á því að þær stíflist, s.s. í mikili rigningu eða leysingum, eða vegna þess að frárennslið frá fyrirtækjum inniheldur stífluvaldandi efni (að fitugildrum). Með samningi við Hreinsibíla eru ákveðnar lagnir hreinsaðar reglulega, en auk þess eru menn á vakt og tilbúnir í vinnu allan sólarhringinn alla daga ársins ef óvæntar stíflur verða. Í framhaldi af óvæntum stíflum er reynt að grafast fyrir um ástæður og úrbætur lagðar til svo vandamálið endurtaki sig ekki.

Oft er um tregðu í lögnum að ræða sem hægt er að hreinsa með háþrýstitækni, óhreinindin losna þá úr lögnunum með hjálp vatnsþrýstings. Dælubílar Hreinsibíla geta hreinsað lagnir allt frá þremur tommum og niður á 40 metra dýpi. Stundum getur svo þurft að hreinsa með fræsi aðrar fyrirstöður, s.s. rætur og aðskotahluti sem valdið geta endurteknum stíflum, og jafnvel getur verið æskilegt að fóðra viðkomandi lögn. Hreinsibílar hafa tæki og þekkingu til þess arna.

Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um stíflulosun.