Frárennslislögnin lagfærð innanfrá
Hreinsibílar hafa áratugareynslu af fóðrun stærri lagna fyrir sveitarfélög en hafa nú síðustu ár bætt við tækjabúnaði til að fóðra minni lagnir. Þar með hafa einstaklingar bæst við viðskiptamannahóp fyrirtækisins þar sem lagnir að íbúðarhúsum eru af þeirri stærð.
Frárennslislagnir að heimilum endast í einhverja áratugi, en þá fara þær að leka og verður að endurnýja. Leki getur komið fram inn í vegg, undir húsi eða úti á lóð á leið lagnarinnar út í brunn eða götu. Hreinsibílar beita sérstakri tækni og nota efni sem ekki eru í boði hjá öðrum þjónustuaðilum á Íslandi. Þessi tækni er þaulreynd og í stöðugri þróun hjá erlendum samstarfsaðilum og hefur virkað vel hérlendis.
Hafðu samband og fáðu tilboð í verk.