Fóðrun hjá matvælaframleiðanda á Suðurlandi

Nú hefur vinna verið kláruð við fóðrun frárennslislagna í kringum vinnsluhúsnæði hjá stórum matvælaframleiðanda á Suðurlandi. Framleiðandinn hafði gert verð- og verkkönnun meðal fyrirtækja á þessu sviði og fengu Hreinsibílar verkið.

Verkefnið var unnið nú í júlí og ágúst og vinnunni skipt upp til að lágmarka truflanir á vinnslunni. Einungis var unnið tvo daga í viku og með því móti kom aldrei til lokana vegna vinnu við lagnirnar. Fóðraðar voru nærri 200 m af lögnum af stærðum 150 mm til 300 mm. Gera má ráð fyrir að framleiðandinn hafi sparað á annan tug milljóna við að láta fóðra lagnirnar í stað þess að skipta um þær með uppgreftri, auk þess sem verulegar truflanir hefðu orðið á vinnslunni á verktímanum.